22.05.2017 20:44

Arnar 2.

Í morgun kláraðist uppsetning á AP60 sjálfstýringu í Arnar2.

Stýrði mjög vel á 20 mílum.

 
 
 

26.04.2017 23:44

LED siglingaljósaperur

Núna í dag komu í hús LED siglingaljósaperur fyrir P28S sökkulinn.

Perurnar eru til í 24 Volta og 240 Volta útgáfu.

 

 

14.04.2017 13:06

Til sölu.

Hyundai Getz, nýskráður jan. 2006. Keyrður 124.000,-

Einn eigandi. Upplýsingar hjá Steina, 853 9007

 

 

01.03.2017 21:35

Kári SH-78

Seinnipartinn í dag lauk með prufusiglingu, breytingum og endurbótum sem Vestan ehf tók að sér í Kára SH 78.

Báturinn var lengdur um 110 sm, skipt um vél og gír, sett nýtt glussakerfi og bætt við hliðarskrúfu að aftan.

Vestan ehf setti nýja sjálfstýringu með stjórnbúnaði fyrir aftari hliðarskrúfu. Einnig voru settar upp tvær myndavélar í vél og á dekk.

Skipt var um hliðarskrúfustjórnbúnað og voru sett stiglaus handföng bæði úti og inni.

Svo voru líka viðgerðir og endurbætur gerðar á rafkerfi.

Fleiri myndir úr Kára eru í myndaalbúmainu.

 

 
Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 10
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 31323
Samtals gestir: 9334
Tölur uppfærðar: 24.11.2024 01:06:41