19.09.2021 12:45
Grettir
19.11.2020 19:59
Ingjaldshólskirkja
Í dag kláraðist að ganga frá uppsetningu á brunaviðvörunarkerfi og
úthringibúnaði við brunakerfið í kirkjunni á Ingjaldshóli.
![]() |
14.11.2020 09:06
Matthías SH-21
Núna í vikunni kláraðist að ganga frá nýju vélaaðvörunarkerfi í Matthíasi.
Gömlu kínversku kerfin sem komu með skipinu voru úr sér gengin og farin að svíkja.
|
||||
19.09.2020 17:04
Inga P
Í gær lauk Vestan ehf við að tækja upp Ingu P. sem fer bráðlega á humargildru veiðar.
Sett var ný sjálfstýring í bátinn með útistýri á dekki ásamt upplýsingaskjá við stýringuna.
Myndavélakerfið um borð var endurbætt með skjá og myndavélum.
Sett var ný tölva fyrir Simrad GPT dýptarmælissendin og nýja ES80 forritið sett upp.
Sett var ný Olex siglingatölva og hún tengd við Simrad GPT sendinn til að safna botnhörkuupplýsingum.
Nýjasta útgáfan af Trackwell afladagbókarforritinu var einnig sett upp.
Fleiri myndir eru í myndaalbúminu.
![]() |


