01.05.2023 21:19
Þórdís SH606
Núna í dag kláraðist að tengja tækjabúnað í Þórdísi. Báturinn er búinn að vera í lengingu og yfirhalningu.
Vestan ehf bætti við Simrad NSS16 GPS plotter og Simrad A2004 sjálfstýringu ásamt
Simrad HS75 GPS áttavita. Allt virkaði vel að lokinni prufusiglingu.
![]() |
Skrifað af Steina
09.10.2022 16:51
Grettir BA39
Í síðustu viku var farið til Reykhóla og skift um radar í Gretti BA39.
Gamli Furuno 7067 radarinn tekin niður og settur upp Simrad R3016 með 4ra feta skannerblaði.
![]() |
Skrifað af Steina
10.11.2021 17:27
Baldur
Í byrjun nóvember kláraðist að setja upp og tengja vindhraðamæli um borð í Baldri.
Mælirinn er tengdur inn á siglingatölvu og GPS áttavita til að fá fram raun vindhraða og stefnu.
|
||
Skrifað af Steina
19.09.2021 13:00
Gunnar Bjarnason SH122
Núna í viku 37 kláraðist uppsetning á nýju aðvörunarkerfi í Gunnari Bjarnasyni SH122.
Nýja kerfið kom í staðinfyrir upphaflega kerfið sem kom í skipinu nýju.
![]() |
Skrifað af Steina



