09.07.2015 23:15
Stakkhamar SH220
Þá er lokið vinnu við uppsetningu á tækjabúnaði í Stakkhamar SH220.
Öll siglinga-, fjarskipta- og fiskileitartæki voru sett niður af Vestan ehf.
Einnig sá Vestan ehf um hliðarskrúfukerfið og tengingu á því við sjálfstýringuna.
![]() |
|
Fleiri myndir eru í myndaalbúminu. |
10.06.2015 17:59
Nýr GPS áttaviti
Komin er á markaðinn ný tegund af GPS áttavita.
Áttavitinn er mjög nettur, lítið stærri en GPS hattur. Verðið er frá 165.000,- án/VSK

Helstu eiginleikar eru:
- Gefur réttvísandi stefu, staðsetningu, veltu og stamp.
- Tengist NMEA 2000® búnaði
- 2° stefnu nákvæmni
- 1 m (RMS) staðsetningar nákvæmni með leiðréttingu
- SBAS compatible for enhanced accuracy (WAAS, EGNOS, MSAS, etc.)
- Heldur stefnu í allt að 3 mínútur ef GPS dettur út
- Lítill og nettur
Nánari upplýsingar á:
http://www.navico-commercial.com/en-US/Products/Gyro-Compasses/Simrad-HS60-GPS-Compass-en-us.aspx
22.03.2015 18:15
Bíldsey SH65
Í gær, laugardag var settur nýr Koden radar í Bíldsey SH65. Gamli Koden radarinn var ekki viðgerðarhæfur.
Radarinn var tengdur inn á GPS, GPS áttavita og AIS tæki.
|
Fleiri myndir í myndaalbúminu. |
20.03.2015 18:39
Gunnar Bjarnason SH122
Þá er lokið uppsetningu á Simrad NSO siglingatölvu í Gunnar Bjarnason.
Við tölvuna sem er plotter í grunninn var tengdur Simrad 4G Broadband radar ásamt Simrad BSM-3 Broadband
dýptarmælissendi, sem tengdur var við eldri gerð af Simrad Combi botnstykki.
![]() |
|
Fleiri myndir af uppsetningunni í myndaalbúminu. |


