06.10.2016 13:07
Simrad AP44
Simrad AP44
Ný sjálfstýring frá Simrad Fyrir nokkrum vikum kynnti Simrad nýja línu af sjálfstýringum fyrir minni báta. Um er að ræða tvær gerðir af stjórntölvum er nota sama stjórnborðið. Stjórnborðið heitir AP44 og stjórntölvurnar heita NAC-2 og NAC-3. Hægt er að tengja báðar tölvurnar bæði við sígangandi- og viðsnúningsdælur. NAC-2 er eingöngu með NMEA2000 samskiptastaðlinum en NAC-3 er með NMEA2000 og NMEA0183 samskiptastöðlunum. Hægt er að nota sömu fjarstýringar og aðrar Simrad stýringar nota, sem eru NF80/FU80 og QS80. Einnig er boðið upp á fjarstýringu af gerðiðnn OP12. Búnaður þessi verður tilbúinn til afgreiðslu í lok október. |